Í sumar efndi Byggðasafn  Snæfellinga og Hnappdæla til opinnar humyndasamkeppni um gerð minjagripa sem tengjast Norska húsinu eða Snæfellsnesi og sem nýta mætti til skrauts, skemmtunar eða daglegra nota. Markmiðið var að fá fram hugmyndir að hlutum sem hægt væri að selja í krambúð Norska hússins.

Frá vinstri: Sunneva Hafsteinsdóttir framkvæmdastjóri Handverks og Hönnunar, Guðmundur Páll Ólafsson, ljósmyndari og rithöfundur, Ástþór Jóhannsson grafískur hönnuður, Steinþór Sigurðsson sýningarhönnuður, Elín Una Jónsdóttir safnvörður Snæfellsbæjar og Gunnar Kristjánsson verslunareigandi og formaður Safnanefndar Byggðasafnsins. Á myndina vantar Aldísi Sigurðardóttur forstöðumann Byggðasafns Snæfellinga. Fyrir borðsendanum er svo hundurinn Aska.

Til að meta innsendar tillögur var valin 7 manna dómnefnd; Aldís Sigurðardóttir forstöðumaður Byggðasafns Snæfellinga og Hnappdæla, Ástþór Jóhannsson grafískur hönnuður, Elín Una Jónsdóttir safnvörður Snæfellsbæjar, Guðmundur Páll Ólafsson ljósmyndari og rithöfundur, Gunnar Kristjánsson verslunarmaður og formaður safnanefndar Byggðasafns Snæfellinga, Steinþór Sigurðsson sýningarhönnuður og Sunneva Hafsteinsdóttir framkvæmdastjóri Handverks og hönnunar.

Ákveðið var að verðlauna 3 bestu hugmyndirnar ef innsendar tillögur stæðust gæði og uppfylltu væntingar aðstandenda keppninnar með 300.000 kr., 150.000 kr. og 75.000 kr.

 

Dómnefnd hefur nú lokið störfum og álit hennar er eftirfarandi:

“Dómnefnd telur að engin innsend tillaga uppfylli þær væntingar sem gerðar voru til 1. verðlauna og hefur því ákveðið að veita aðeins 2. og 3. verðlaun. 

2.      verðlaun hlýtur Lára Gunnarsdóttir, Aðalgötu 13, 340 Stykkishólmi fyrir hugmyndir að veðurbók, gestabók, kvendjásnakassa, bréfakassa og veggspjaldi en þessa muni tengdi Lára sögu Norska hússins.

3.      verðlaun hlýtur Gerður Steinarsdóttir, Laxalóni (við Krókháls), 110 Reykjavík fyrir tillögu sína um útskorið bókamerki í líki Norska hússins.

 

Dómnefnd hefur þar að auki valið 6 tillögur sem hún mælir með til frekari skoðunar og hugsanlegrar útfærslu.

 

Að lokum vilja aðstandendur keppninnar lýsa yfir þakklæti fyrir mikinn áhuga almennings á minjagripakeppninni og fyrir innsendar tillögur en alls bárust 130 tillögur frá 47 aðilum.