Ræstingastörf – þrjú störf

Grundarfjarðarbær óskar eftir að ráða sem fyrst starfsmenn til að sinna ræstingu á þremur af húseignum bæjarins. Um er að ræða 26 klst. á mánuði í einni eigninni, 12 klst. á mánuði í annarri og 6 klst. á mánuði í þeirri þriðju. Vinnutími er sveigjanlegur. Sami einstaklingur getur sinnt öllum störfunum.   Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Dala- og Snæfellsness (SDS).   Nánari upplýsingar eru veittar á bæjarskrifstofu í síma 430 8500 eða á netfangi grundarfjordur@grundarfjordur.is   Umsóknarfrestur er til 10. apríl nk.   Sækja um ræstingastörf    

Grundarfjarðarbæ úthlutaður styrkur vegna Kirkjufellsfoss

    Í dag var tilkynnt um úthlutun úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða fyrir árið 2018. Grundarfjarðarbær hlýtur styrk að upphæð kr. 61.966.140.- til að gera nýtt bílastæði auk nýrrar gönguleiðar og áningarstað við Kirkjufellsfoss.  

Árshátíð 1.-7. bekkjar á fimmtudag kl 16:30

  Árshátíð 1.-7. bekkjar Grunnskóla Grundarfjarðar verður haldin í Samkomuhúsi bæjarins fimmtudaginn 22. mars kl 16:30.   Miðaverð er kr. 1.000   Allir velkomnir!    

Fyrsta steypan komin í nýtt fiskiðjuver G.Run

    Í morgun rann fyrsta steypan í mótin við gerð nýs fiskiðjuvers hjá Guðmundi Runólfssyni hf. Töluvert magn af steypu á eftir að bætast við því samtals verður nýja byggingin um 2.500 fermetrar. Fyrsta skóflustungan var tekin degi fyrir sjómannadaginn á síðasta ári og nú er byrjað að steypa. Stór áfangi í atvinnulífi Grundarfjarðarbæjar.    

Tillaga að deiliskipulagi fyrir Kirkjufellsfoss

Bæjarstjórn Grundarfjarðar auglýsir hér með tillögu að deiliskipulagi áfangastaðar við Kirkjufellsfoss, skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.    Tillaga á vinnslustigi - Greinargerð   Tillaga á vinnslustigi - Uppdráttur

Tillaga að deiliskipulagi fyrir áfangastað við Kolgrafafjörð

Bæjarstjórn Grundarfjarðar auglýsir hér með tillögu að deiliskipulagi áfangastaðar við Kolgrafafjörð, skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.   Tillaga á vinnslustigi - Greinargerð   Tillaga á vinnslustigi - Uppdráttur  

Minnum á námskeið

 

Íbúð til leigu

Leiguíbúð að Ölkelduvegi 9 er laus til umsóknar. Íbúðin er fjögurra herbergja og 87 fermetrar, auk 35 fermetra bílskúrs. Leigusamningur er gerður til sex mánaða í senn. Íbúðin er í eigu Íbúðalánasjóðs, en framleigist af Grundarfjarðarbæ.   Íbúðin leigist frá 1. apríl 2018.   Nánari upplýsingar eru veittar á bæjarskrifstofu í síma 430 8500.   Sótt er um íbúðina hér!   Umsóknareyðublað   Umsóknarfrestur er til 20. mars 2018.  

Skíðaferð 8. – 10. bekkjar 2018

  Nemendur í 8. – 10. Bekk í Grunnskóla Grundarfjarðar fóru í þriggja daga skíðaferð í Bláfjöll í febrúar og skemmtu sér konunglega. Hér á eftir er stutt ferðasaga frá skíðaferðalöngunum.      

Aðalfundur Listvinafélags Grundarfjarðarkirkju

Aðalfundur Listvinafélags Grundarfjarðarkirkju verður haldinn í safnaðarheimili Grundarfjarðarkirkju, fimmtudaginn 15. mars 2018 kl. 20:00.    1. Skýrsla stjórnar 2. Ársreikningur 3. Kosning nýrrar stjórnar 4. Önnur mál   Léttar veitingar í boði og hvetjum við alla til að mæta.   Stjórn Listvinafélags Grundarfjarðarkirkju