Landvarsla - Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull og Vesturland

 

Umhverfisstofnun auglýsir eftir landvörðum í tímabundin störf í Þjóðgarðinn Snæfellsjökul og á friðlýst svæði á Vesturlandi.  Starfsemin fer annars vegar fram í þjóðgarðinum, á utanverðu Snæfellsnesi, á gestastofu á Malarrifi, ströndinni við Stapa og Hellna ásamt Búðahrauni og hins vegar á friðlýstum svæðum á Vesturlandi, í Akraneskaupstað, Borgarbyggð, Hvalfjarðarsveit og Skorradalshrepp. Umsækjendur eru beðnir að forgangsraða í umsókn á hvoru svæðinu þeir óska heldur að starfa á.

Landverðir hjá Umhverfisstofnun fá þjálfun í upphafi starfstímans og kynningu á svæðinu sem starfað verður á. Sameiginleg móttaka allra sumarlandvarða verður haldin 20. maí klukkan 13-17 og gert er ráð fyrir þátttöku allra.

Helstu verkefni og ábyrgð 

  • Umsjón og eftirlit með starfssvæðum
  • Gæta þess að ákvæðum náttúruverndarlaga og sérlaga, friðlýsingarskilmála og stjórnunar- og verndaráætlana svæða sé fylgt
  • Móttaka gesta á gestastofunni á Malarrifi (landverðir í þjóðgarðinum)
  • Upplýsa og fræða gesti um náttúru og sögu svæðanna, m.a. með fræðslugöngum
  • Sinna viðhaldi innviða og halda við merktum gönguleiðum
  • Bregðast við ef slys ber að höndum

Hæfniskröfur 

  • Landvarðanámskeið eða nám sem Umhverfisstofnun telur samsvarandi er krafa
  • Gild ökuréttindi er krafa
  • Gild skyndihjálparréttindi er krafa. Boðið verður upp á námskeið í fyrstu hjálp í vor
  • Góð færni í samskiptum er mikilvæg
  • Reynsla af landvörslustörfum er kostur
  • Þekking á viðkomandi starfssvæði er kostur
  • Góð kunnátta í íslensku og ensku er mikilvæg og frekari tungumálakunnátta kostur
  • Reynsla af útivist og náttúrutúlkun, skálavörslu, björgunarsveitarstörfum og leiðsöguréttindi eru kostir

 

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. 

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 14.02.2022

Nánari upplýsingar veitir

Jón Björnsson - jonb@umhverfisstofnun.is - 5912000
Þórhildur María Kristinsdóttir - thorhildur.kristinsdottir@umhverfisstofnun.is - 5912000

Smelltu hér til að sækja um starfið