- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Það var á nógu að taka á Þjóðhátíðardegi Íslendinga, 17 júní, en dagskráin hófst með hinum árlegu Grundar- og Kvernárhlaupum UMFG. Þátttaka var með besta móti en alls tóku 56 manns þátt þrátt fyrir töluverðan vind. Grundarhlaupið var ræst út kl. 10:00 frá Grundargötu 30 og eru hlaupnir 2,5km í átt að Grund áður en snúið er við sömu leið til baka. Hálftíma síðar eða kl. 10:30 var Kvernárhlaupið ræst út, en í því er hlaupið frá ristarhliði austan megin við bæinn að Grundargötu 30. Að loknu hlaupi var þreyttum hlaupurum boðið upp á ávexti. Að loknu hlaupi tók var haldið í sundlaug Grundarfjarðar þar sem sundmót UMFG var haldið. 16 krakkar tóku þátt og var keppt í bringu- og skriðsundi.
Félagið bauð iðkendum félagsins og öðrum upp á pylsur og safa ásamt því að gefa öllum iðkendum sokka merkta félaginu, bol og skóskraut með merki félagsins. Eftir grillið voru veitt verðlaun fyrir bestu mætingu og mestu framfarir í hverri íþróttagrein. Allir sem hlutu viðurkenningar fengu merktan eignarbikar.
Skrúðgangan fór svo frá miðbæjarreit í átt að hátíðarsvæði með lögregluna og menningarnefnd sem fánabera í fararbroddi. Gengið var upp Hrannarstíginn og Ölkelduveg í átt að íþróttahúsinu þar sem hátíðardagskráin fór fram utandyra. Sólveig Stefanía Bjarnadóttir var fjallkona Grundarfjarðar og flutti ljóðið Íslandsljóð eftir Tómas Guðmundsson og Ingibjörg Eyrún Bergvinsdóttir hélt hátíðarræðu (ljóðið og hátíðarræðuna er hægt að sjá í hlekk neðar). Leik og Sprell steig á stokk og sýndi frumsamið verk sem þau hafa verið að vinna að á námskeiði sem var haldið í byrjun júní. Skólakór Grunnskóla Grundarfjarðar lokaði svo dagskránni á hátíðarsvæðinu með nokkrum velvöldum útilegulögum sem þau hafa verið að æfa í vetur. Kynnar á hátíðinni í ár voru þau Klara Dögg Tryggvadóttir og Sævar Hjalti Þorsteinsson og stóðu þau sig með miklu prýði.
Á hátíðarsvæðinu var nóg um að vera, inni í íþróttahúsi var hoppukastali fyrir yngri kynslóðina ásamt því að Blossi var með sölubás þar sem hægt var að fá popp, candy floss, blöðrur og annað góðgæti sem er nauðsynlegt á 17. júní. Hjá ærslabelgnum voru svo loftboltar sem eru alltaf vinsælir.
Heimildarmyndin "Þorp verður til" var sýnd í Grundarfjarðarkirkju, þetta er ný mynd sem segir frá tilurð Grundarfjarðarbæjar. Myndin var framleidd alfarið af heimafólki í samstarfi við Bæringsstofu.
Sigríður Diljá Guðmundsdóttir er um þessar mundir að halda ljósmyndasýningu í Samkomuhúsi Grundarfjarðar og opnaði hún á 17. júní. Sigríður Diljá hefur verið dugleg að taka náttúru- og dýralífsmyndir undanfarin ár og er hægt að sjá afraksturinn í dag 18. júní, laugardaginn 20. júní og sunnudaginn 21. júní.
Dagurinn endaði svo á því að 9. bekkur bauð 7.-10. bekk í sundlaugarpartý. Þar var mikið stuð, tónlist var spiluð og hægt var að gæða sér á krapi í boði Blossa.
Íslandsljóð eftir Tómas Guðmundsson
Hátíðarræða - Ingibjörg Eyrún Bergvinsdóttir
Grundarfjarðarbær vill þakka öllum sem tóku þátt, undirbjuggu og leyfðu okkur að njóta, og þá sérstaklega: