Frá 17. júní skrúðgöngu 2021
Frá 17. júní skrúðgöngu 2021

Undirbúningsvinna við 17. júní hátíðarhöldin er í fullum gangi og dagskrá að mótast með föstum liðum eins og undanfarin ár, ljóðaupplestur fjallkonu, hátíðarræða og aðrar skemmtilegar uppákomur. 

Ert þú með sérstaka opnun, tilboð eða viðburð í huga fyrir 17. júní sem ætti heima í hátíðardagskránni?

Þá biðjum við þig um að hafa samband við Þurí á netfangið thuri@grundarfjordur.is með nánari upplýsingum fyrir föstudaginn 10. júní. 

Formleg dagskrá verður birt síðar.