Fræðslu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, Ísland á iði, stendur fyrir ,,Hjólað í vinnuna”, heilbrigðri fyrirtækjakeppni um allt land dagana 2. - 22. maí.

 

Meginmarkmið ,,Hjólað í vinnuna” er að vekja athygli á hjólreiðum sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta.

 

Allir þeir sem nýta eigin orku til að ferðast til og frá vinnu eru gjaldgengir þátttakendurþ.e. hjóla, skokka, ganga, nota línuskauta o.s.frv. Þeir sem taka strætó geta einnig tekið þátt en þá er skráð sú vegalengd sem gengin er til og frá stoppistöð.

 

Keppnisgreinarnar eru 2:

1) Flestir þátttökudagar (hlutfallslega m.v. fjölda starfsmanna í fyrirtækinu).
2)   Flestir km (hlutfallslega m.v. fjölda starfsmanna í fyrirtækinu).

Glæsilegir verðlaunaskildir er veittir fyrir efstu þrjú sætin í hverjum fyrirtækjaflokki.

Keppnisflokkarnir eru 6 eftir fjölda starfsmanna í fyrirtæki:

Flokkarnir miðast við heildar fjölda starfsmanna í fyrirtækinu: 

3-9starfsmenn,10-29starfsm., 30-69starfsm., 70-149starfsm.,150-399starfsm. og 400 o.fl.starfsmenn.

 

Liðstjóri heldur utan um sitt lið, Hér má finna skráningarblað.

Hvert lið má innihalda 1-10 liðsmenn. Í hverju liði er liðsstjóri sem sér um að skrá lið sitt til þátttökuog hann heldur einnig utan um daglega skráningu á netinu.

Ef vinnustaðurinn er fámennur getur verið skemmtilegra að slá saman í lið með öðrum.

 

Verður þinn vinnustaður með í Hjólað í vinnuna í ár J

Að lokum hvetjum ykkur til að hefja undirbúning tímanlega, byrja að ýta við ykkar fólki og hugleiða hvernig þið getið nýtt “Hjólað í vinnuna” í víðasta skilningi til að efla hreysti og stemningu á ykkar vinnustað.