Mánudaginn 21. nóvember nk. (seinnipart dags) verður haldinn opinn íbúafundur í tengslum við endurskoðun aðalskipulags Grundarfjarðarbæjar. Á fundinum verður kynnt grunnvinna sem farið hefur fram og leitað til íbúa sveitarfélagsins um ýmis mikilvæg atriði sem snerta daglegt líf og framtíðaruppbyggingu.

Fundurinn verður auglýstur og kynntur betur fljótlega, en íbúar eru hvattir til að taka tímann frá fyrir skemmtilegan fund!

 

Grundarfjarðarbær