Nú er íslandsmótið í fótbolta farið af stað og gengi okkar í fyrstu leikjunum mjög gott. 

1.júní spiluðu stelpurnar í 4.flokki við Leikni í Reykjavík 4.fl A gerði jafntefli 2-2 og skoruðu Dagfríður Ósk og Jóhanna Steinþóra mörk okkar. 4.fl B vann sinn leik 3-2 og mörkin okkar skoruðu Sunna Rós (2 mörk) og Bryndís eitt. Við erum í samstarfi við Snæfell í 4.fl kv og eru þær Sunna Rós og Bryndís í Snæfell.

Strákarnir í 4.fl eru líka búnir með einn leik þeir sigruðu Skallagrím 7-3,mörk okkar skoruðu; Steinar Már 2 mörk,Brynjar 2 mörk ,Hjörtur Rósmann 1 mark,Erling 1 mark og Heimir Þór 1. Glæsileg byrjun hjá krökkunum .