Á nýliðnu ári voru 453 fréttir, þar af nokkrar tilkynningar með takmarkaðan líftíma, skrifaðar hér á vef Grundarfjarðarbæjar. Af þessum fréttum voru um 50 skrifaðar af Ungmennafélagi Grundarfjarðar.

Þetta eru um 8,7 fréttir að meðaltali í hverri viku og hefur því verið skrifuð um 1,8 frétt á dag hvern virkan dag ársins.

Innlit og umferð á bæjarvefnum jókst til muna á árinu 2005, frá fyrra ári.

Notendum bæjarvefs er bent á að hægt er að senda fyrirspurnir beint í gegnum vefinn (neðst á forsíðu). Allar ábendingar um efni og útlit bæjarvefs eru vel þegnar.