Sólin skein skært á vellinum í dag en ekki með okkar liðum. 4.fl kv fékk lið Víði/Reyni í heimsókn í dag og það er skemmst frá því að segja að við töpuðum báðum leikjunum 2-7. Mörk A liðsins gerð Dagfríður og Sigurrós og mörk b liðsins gerðu þær Björg og Bryndís.

Fjórar stelpur vantaði í okkar lið og spilaði liðið langt undir getu en stelpurnar  eru ákveðnar í því að klára íslandsmótið með stæl og vinna síðasta leikinn sem verður á móti Fram á Sunnudaginn.