4. fl kv spilaði við lið Stjörnunnar í gær. A lið UMFG tapaði sínum leik 0-5 en þrátt fyrir tapið voru stelpurnar að spila góðan bolta.

B lið UMFG sigraði Stjörnuna 4-3 og áttu þær Silja Guðnadóttir, Silja Rán, Lilja Bjarnadóttir og Arndís stórleik.

Mörkin okkar skoruðu þær Lilja og Björg en þær koma báðar frá Snæfell Lilja átti 3 mörk og Björg 1.

Þess má geta að lið Stjörnunnar er efst í riðlinum.

Næsti leikur 4.flokks er á móti Víking R á þriðjudaginn kl 17:00 hér í Grundarfirði.