Þann 6. janúar næstkomandi verður Grunnskóli Grundarfjarðar 50 ára. Af því tilefni verður opið hús í skólanum frá kl. 08:00-12:30. Grundfirðingum er boðið að koma og sjá nemendur í leik og starfi, að skoða myndir úr skólalífinu og þiggja léttar veitingar.

Starfsfólk Grunnskóla Grundarfjarðar vonast til að sem flestir sjái sér fært að sækja skólann heim þennan dag og gleðjast með þeim á þessum tímamótum.