Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson
Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson

Á góðri stund í Grundarfirði

Nú í vikunni fer bæjarhátíðin okkar í gang, hún nær yfir dagana 21.-23. júlí 2022 og rúmlega það. Sérstakt hátíðarfélag er starfandi hér í bæ og hafa þau soðið saman stórglæsilega dagskrá þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. 

Hátíðarsvæðið er niðri á höfn en í meira mæli í ár er viðburðum dreift útum allan bæ. Við biðjum íbúa og aðra gesti um að ganga vel um bæinn okkar og hjálpast að við að halda bænum snyrtilegum svo hátíðin gangi sem best fyrir sig og öllum líði vel.

Minnum á að algert glerbann er á hátíðarsvæði!

Góða skemmtun!

Dagskrá er að finna hér 

Á góðri stund - Facebook síða- Þar birtast tilkynningar og mögulegar breytingar á dagskrá