Aðalfundur Eyrbyggja, hollvinasamtaka Grundarfjarðar verður haldinn laugardaginn 18. febrúar nk. kl. 17:00 í Eyrbyggju Sögumiðstöð, Grundargötu 35. Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf, önnur mál.

 

Að loknum aðalfundi verður sögustund og fleira skemmtilegt. Vonumst til að sem flestir sjái sér fært að mæta.

 

Stjórnin.

 

Í stjórn Eyrbyggju sitja: Ásthildur Elva Kristjánsdóttir, Benedikt Gunnar Ívarsson, Bergþóra Sigurðardóttir, Orri Árnason, Guðlaugur Þór Pálsson, Hafdís Gísladóttir, Hermann Jóhannesson (formaður) og Atli Már Ingólfsson (varamaður).

 

Hermann Jóhannesson tók við formennsku af Bjarna Júlíussyni á aðalfundi 2005. Hann er þriðji formaður samtakanna frá stofnun þeirra.

 

Heimasíðu Eyrbyggja er að finna á www.grundarfjordur.is – Hollvinir. Þar má finna allar helstu upplýsingar um samtökin, fréttir og fundargerðir.