Bæjarstjórn Grundarfjarðar auglýsir í dag tillögu að aðalskipulagi Grundarfjarðar 2003-2015 þéttbýlihluta samkvæmt 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum.

Tillagan verður til sýnis á bæjarskrifstofu Grundarfjarðar, Grundargötu 30,  frá og með deginum í dag til 12. sept 2003. Athugasemdir ef einhverjar eru, skulu hafa borist umhverfisnefnd Grundarfjarðar í síðasta lagi 26. september 2003. Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkir tillögunni.