Heildarafli íslenskra skipa í mars sl. var 212.800 tonn samanborið við 264.900 tonn í mars 2004. Af heildinni voru 2.634 tonnum landað í Grundarfjarðarhöfn í mars sl. samanborið við 1.946 á sama tíma í fyrra eins og kom fram hér á vefsíðu Grundarfjarðarbæjar fyrr í apríl. Heildarafli íslenskra skipa var tæpum 20% minni í mars 2005 heldur en í mars 2004 en heildarafli landaður í Grundarfjarðarhöfn jókst um 35% á milli marsmánuða 2004-2005.

 

Sótt í frétt á  mbl, 14. apríl 2005.