- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Áform um uppbyggingu á ÍB-6 svæðinu
Á fundi bæjarráðs þann 21. júlí 2026 var samþykkt að fela bæjarstjóra að kanna áhuga markaðsaðila á þróun og uppbyggingu ÍB-6 svæðisins. Svæðið er skilgreint í Aðalskipulagi Grundarfjarðarbæjar 2019-2039 sem íbúðasvæði og jafnframt eitt af framtíðaruppbyggingarsvæðum bæjarins.
ÍB-6 svæðið er staðsett vestast í bænum við Grundargötu og myndar eðlilegt framhald þeirrar byggðar sem fyrir er. Svæðið er óbyggt, hefur ekki verið deiliskipulagt og er um 2,3 hektarar að stærð. Við fyrri skipulagsvinnu var gert ráð fyrir að á svæðinu gætu risið allt að 46 íbúðir.
Markmið verkefnisins er að afla upplýsinga um áhuga og hugmyndir markaðsaðila varðandi mögulega þróun og uppbyggingu svæðisins. Niðurstöður þessarar könnunar munu nýtast við mat á næstu skrefum í skipulags- og uppbyggingarmálum svæðisins.