Mynd GK

 

Laugardaginn 11. nóvember sl. mættu 200 í áheitagöngu félagsmiðstöðvarinnar Eden sem haldin var í tilefni af opnun Orkunnar í Grundarfirði. Orkan hafði heitið á Eden 500 kr. fyrir hvern sem skráði sig í gönguna og var í eða með eitthvað bleikt. Að göngunni lokinni ákváðu Orkumenn að tvöfalda upphæðina vegna þess hversu duglegt fólk var að mæta þrátt fyrir veðurhaminn. Félagsmiðstöðin fékk því 200 þús.kr. og þakkar Orkunni fyrir þetta frábæra framtak þeirra.