Áhugahópur um velferð ungs fólks á Snæfellsnesi heldur fræðslufundi dagana 24. -26. nóvember fyrir foreldra, forráðamenn og alla aðra sem koma að störfum með börnum og unglingum. Fundirnir verða haldnir í Snæfellsbæ, Félagsheimilið Klif, 24. nóvember kl. 20:00 , í Grundarfirði, FSN, 25. nóvember kl. 20:00 og í Stykkishólmi, Safnaðarheimilið Stykkishólmi, 26.nóvember kl. 20:00. 

Foreldrar hafa verið og verða alltaf sterkasta vopnið í baráttu gegn óæskilegum áhrifum í lífi barna og unglinga. Efni þessara fyrstu funda hópsins verður vímuefnaneysla unga fólksins. Boðið verður upp á fræðslu fyrir foreldra og forráðamenn um þróun vímuefnaneyslu. Hvaða efni notar unga fólkið? Hver eru merki um neyslu vímuefna? En fyrst og fremst, hvað getum við gert? Margoft hefur komið í ljós að samtakamáttur foreldra er miklu sterkara afl en félagsmálayfirvöld, lögregla og skóli geta nokkurn tíma verið. Opinberir aðilar verða oftast stuðnings- og/eða viðbragðsaðilar eftir að í óefni er komið.


Á fundina mæta fulltrúar lögreglu og heilbrigðisþjónustunnar ásamt Kristgeiri Kristinssyni áfengis- og fíkniefnaràðgjafi, en hann hefur t.d. mikla reynslu af því að vinna með ungu fólki sem komið er í neyslu eða hefur stigið upp úr neyslu. Við hvetjum alla til þess að mæta og fá svör við þeim spurningum sem hér hafa verið settar fram ásamt því að leita svara við fjölmörgum öðrum spurningum tengdum vímuefnaneyslu.

Áhugahópur um velferð ungs fólks á Snæfellsnesi