Samkvæmt auglýsingu Sýslumanns Snæfellinga sem birtist í Jökli 17. mars sl. fer atkvæðagreiðsla utan kjörfundar, vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um gildi laga nr. 13/2011 sem fram fer 9. apríl 2011, fram á skrifstofu sýslumanns Hrannarstíg 2, virka daga kl. 13:00-14:00.

Hægt er að kjósa á öðrum tíma samkvæmt nánara samkomulagi við kjörstjóra.