Álagningu fasteignagjalda 2026 er nú lokið.

Eins og undanfarin ár verða ekki sendir útprentaðir álagningarseðlar í pósti, en álagning birtist í vefgátt Þjóðskrár, Ísland.is (island.is) Gjaldendur geta skráð sig inn með rafrænum skilríkjum eða Íslykli. Greiðsluseðlar verða sendir rafrænt í heimabanka gjaldenda.

Gjalddagar fasteignagjalda eru tíu, líkt og fyrri ár. Fyrsti gjalddaginn er 1. febrúar og eindagi er 30 dögum síðar.

Vatnsgjald er innheimt af Veitum ohf. (dótturfélagi Orkuveitu Reykjavíkur). Fyrirspurnum um vatnsgjald skal beina til Veitna í síma 516 6000 eða með tölvupósti á netfangið veitur@veitur.is

Afsláttur fasteignaskatts til tekjulágra eldri borgara og öryrkja er veittur í samræmi við reglur sem bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar hefur sett (sjá hér fyrir neðan). Afsláttur reiknast sjálfvirkt út frá upplýsingum Ríkisskattstjóra og er miðað við tekjur ársins 2024, skv. skattframtali 2025.

Heildarálagning fasteignagjalda að fjárhæð 25.000 kr. og lægri kemur óskipt til greiðslu á einum gjalddaga, þann 1. maí 2026.

Alla reikninga frá Grundarfjarðarbæ má nálgast á bæjardyrum á heimasíðunni okkar.