Álagning fasteignagjalda 2021

Álagningu fasteignagjalda 2021 er nú lokið.

Eins og á síðasta ári verða ekki sendir útprentaðir álagningarseðlar í pósti, en álagningar birtast á vefgátt Þjóðskrár, www.island.is. Gjaldendur geta skráð sig inn með rafrænum skilríkjum eða íslykli. Greiðsluseðlar verða sendir rafrænt í heimabanka gjaldenda.

Gjalddagar fasteignagjalda eru tíu, líkt og fyrri ár. Fyrsti gjalddagi er 1. febrúar og eindagi 30 dögum síðar. Vatnsgjald er innheimt af Veitum ohf. (dótturfélagi Orkuveitu Reykjavíkur). Fyrirspurnum um vatnsgjald skal beina til Veitna í síma 516 6000 eða með tölvupósti á netfangið veitur@veitur.is

Afsláttur fasteignaskatts til tekjulágra eldri borgara og öryrkja er veittur í samræmi við reglur sem bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar hefur sett. Afsláttur reiknast sjálfvirkt út frá upplýsingum Ríkisskattstjóra og er miðað við tekjur ársins 2019, skv. skattframtali 2020.

Heildarálagning fasteignagjalda að fjárhæð 25.000 kr. og lægri kemur óskipt til greiðslu á einum gjalddaga, þann 1. maí 2021.

 

Álagningarákvæði fasteignagjalda 

Reglur um afslátt af fasteignaskatti

 

Klippikort 2021

Klippikort fyrir árið 2021 verða borin í hús á næstu dögum.  Húseigendur eru hvattir til að varðveita kortið vel og hafa það ávallt meðferðis þegar farið er á gámasvæðið.

Einnig hvetjum við íbúa til að vera duglegir að flokka sorpið, hér fyrir neðan eru hlekkir á flokkunarhandbók og ýmsar gagnlegar upplýsingar í sambandi við flokkun.

Flokkunarhandbók

Leiðbeiningar um flokkun, íslenska, english og polski.

 

Fyrirspurnum skal beina til Grundarfjarðarbæjar í síma 430 8500 á opnunartíma ráðhúss 10:00-14:00 virka daga, eða í tölvupósti á netfangið grundarfjordur@grundarfjordur.is