- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Vegna almyrkvans er búist við miklum fjölda ferðamanna til landsins, hversu margir það verða er erfitt að segja og líklegt að ytri þættir eins og veður spili inn í ákvörðun þeirra að fara á Snæfellsnes, Reykjanes eða Vestfirði.
Vegagerðin hefur boðað. vegalokanir og tímabundnar umferðastýringar til þess að bregðast við þeim mikla fjölda sem er væntanlegur. Á Snæfellsnesi hefst umferðastýring kl. 09:00 með einstefnu í vestur frá Búðum að vegamótum við Öndverðanesveg. Öndverðarnesvegur verður lokaður en boðið verður upp á rútuferðir fyrir þá sem vilja, á vegum Snæfellsjökulsþjóðgarðs.
Almyrkvi í Grundarfirði
Slökkt verður á sjálfvirkir götulýsingu á meðan á almyrkva stendur. Kveikt verður aftur á götulýsingu á Grundargötu eftir að almyrkva lýkur en önnur götulýsing verður slökkt þangað til 13. ágúst.
Það má búast við miklum fjölda ferðamanna til Grundarfjarðar, bæði umferð sem keyrir í gegn og ferðamenn sem dvelja hér. Gisting er fyrir löngu orðin uppseld og tjaldsvæðið kemur til með að fyllast á allra næstu dögum.
Skemmtiferðaskip verða í höfn alla daga frá 9.-12. ágúst. Tvö skip með um 3000 farþega verða í höfn 12. ágúst en bæði skipin stefna að því að vera farin úr höfn áður en almyrkvi skellur á.
Mikilvægt er að gæta öryggis augna en reglan er sú að í deildarmyrkva þá skal vera með sólmyrkvagleraugu, í almyrkva á að taka þau af. Frekar upplýsingar um öryggi augna má finna hér.
Sævar Helgi Bragason heldur úti vefsíðunni Sólmyrkvi 2026. Á vefsíðunni má finna ítarlegar upplýsingar um almyrkvann, öryggi augna, sýnileika eftir landshlutum og annað sem gagnlegt er að vita fyrir viðburðinn.
Ábendingar frá Fjarskiptastofu
Fjarskiptastofa minnir á tvö mikilvæg atriði til að hafa í huga sé ferðast um landið, sérstaklega á afskekktum svæðum þar sem fjarskiptainnviðir geta verið viðkvæmir:
1. Vistaðu varanúmer Neyðarlínunnar, 599 0112. Á svæðum þar sem farsímasamband er takmarkað getur varanúmerið reynst mikilvægt þegar ná þarf sambandi við neyðarþjónustu.
2. Sýnum þolinmæði í netumferðinni. Á vinsælum áfangastöðum og dreifðum svæðum getur álag á farsíma- og gagnanet verið mikið. Margir vilja deila ferðaupplifun sinn, senda myndir og myndskeið eða streyma efni, en mikilvægt er að hafa í huga að afkastageta neta utan þéttbýlis er ekki alltaf sú sama og fólk á að venjast.
Með því að vera undirbúin og sýna tillitssemi í netnotkun stuðlum við að auknu öryggi og betri þjónustu fyrir alla á ferð um landið.
Stjórnvöld hafa gefið út hagnýtar upplýsingar fyrir morgundaginn.
Stjórnvöld hvetja alla til að fylgjast með nýjustu upplýsingum um veður, umferð og aðgengi. Upplýsingar er hægt að finna í eftirfarandi hlekkjum:
Upplýsingagátt stjórnvalda
Gagnvirkt sólmyrkvakort
Veðurspá fyrir almyrkva
Upplýsingasíða vegagerðarinnar um almyrkva
Umferðin.is
Upplýsingar um öryggi og augnheilsu og leiðbeiningar Embættis landlæknis