Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson
Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson

 Miðvikudaginn 12. ágúst 2026 mun almyrkvi á sólu ganga yfir vesturhluta Íslands og sjást frá öllum sveitarfélögum á Vesturlandi. Gera má ráð fyrir mikilli aðsókn gesta á svæðið til að upplifa þennan sjaldséða atburð og því mikilvægt að allir sem málið varðar taki þátt í undirbúningi og samráði.

Markaðsstofa Vesturlands – áfangastaðastofa heldur utan um samráðsvettvang Vesturlands vegna almyrkva, þar sem hagaðilar vinna saman að því að skapa yfirsýn yfir aðstöðu og mögulegar aðgerðir á svæðinu. Markmiðið er að stuðla að góðum undirbúningi fyrir atburðinn, auk þess að miðla upplýsingum og kynna þá aðstöðu og upplifunarmöguleika á Vesturlandi sem gestir sem koma til að sjá almyrkvann geta nýtt sér. Áhugasamir eru hvattir til að taka þátt í undirbúning og kynna sér samráðsvettvang og opinn kynningarfund.

Samráð við ferðaþjónustuaðila og landeigendur

Mikilvægt er að ná til ferðaþjónustuaðila og landeigenda sem kunna að hafa aðstöðu eða áhuga á að taka á móti gestum í tengslum við almyrkvann, til dæmis með:

  • bílastæðum
  • tjaldsvæðum
  • aðstöðu fyrir hópa
  • annarri þjónustu

Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í slíku samráði eru hvattir til að skrá sig hér: Hlekkur á skráningarform.

Skráningin er ekki bindandi, heldur aðeins til að skrá áhuga á að ræða möguleika á nýtingu á aðstöðu eða landi. Markaðsstofa Vesturlands mun í framhaldi hafa samband við þá aðila sem skrá sig til frekara samráðs.

Opinn upplýsingafundur á Teams – 12. mars

Til að kynna stöðu undirbúnings og ræða samstarf vegna almyrkvans verður haldinn opinn upplýsingafundur á Teams fimmtudaginn 12. mars kl: 14:00.

Fundurinn er sérstaklega ætlaður ferðaþjónustuaðilum og landeigendum, en öllum sem hafa áhuga á málinu er velkomið að taka þátt.

Hlekkur á skráningarform fyrir upplýsingafund 12. mars. 

Teams-tengill á fundinn verður sendur til þeirra sem skrá sig.