- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Alþjóðlegur dagur vistvanga UNESCO
Í dag, 3. nóvember, er alþjóðlegur dagur vistvanga UNESCO (International Day for Biosphere Reserves).
Dagurinn er tileinkaður mikilvægi vistvanga og vakin er athygli á hlutverki þeirra í verndun líffræðilegrar fjölbreytni, sjálfbærri þróun og samspili manns og náttúru.
Vistvangar UNESCO, Man and the Biosphere (MAB), byggja á þeirri hugmynd að náttúruvernd og sjálfbær nýting auðlinda geti farið saman. Starfsemi vistvanga stuðla að rannsóknum, fræðslu, samstarfi og nýsköpun þar sem samfélög og náttúra fá að dafna saman.
Til hamingju með daginn Snæfellingar!