Ætlunin er að boða til minningarathafnar við bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi klukkan 11 sunnudaginn 18. nóvember 2012 þar sem minnst verður fórnarlamba umferðarslysa og jafnframt heiðraðar þær starfsstéttir sem koma að björgun og aðhlynningu. Frá árinu 1993 hefur þriðji sunnudagur í nóvember verið tileinkaður minningu fórnarlamba umferðarslysa. Starfshópur innanríkisráðuneytisins um Áratug aðgerða annast undirbúning þessa verkefnis.

Við teljum mikilvægt að allir landsmenn taki þátt í þessu hvort sem menn eiga heimagengt til þessarar athafnar við Landspítalann eða boðað til einhverrar samverustundar að þessu tilefni á sínum heimaslóðum.

Klukkan 11:15 verður boðað til einnar mínútu þagnar til minningar um fórnarlömb umferðarslysa. Með almennri kynningu, dagana á undan, verður reynt að fá sem flesta landsmenn til að taka þátt í þögninni.

Þess skal getið að við Landspítalann koma m.a. saman fulltrúar þeirra starfstétta sem kallaðar eru til þegar alvarleg umferðarslys eiga sér stað. Einnig verða viðstaddir forseti Íslands, ráðherrar innanríkismála og/eða velferðarmála ásamt fjölmiðlum auk fleiri gesta.