100. fundur bæjarstjórnar

100. fundur bæjarstjórnar Grundarfjarðar verður haldinn fimmtudaginn 18. desember nk. í samkomuhúsinu. Fundurinn hefst kl. 16.15 og er fólk velkomið að koma og hlusta á það sem fram fer. Fundarboð og dagskrá má nálgast hér.

Jólafrí í íþróttahúsi

Íþróttahúsið verður lokað frá og með föstudeginum 19. desember og opnar aftur mánudaginn 5. janúar.

Vinna hafin við skíðalyftuna

Nú í dag mánudag hófu hluti af áhöfnum Farsæls SH og Helga SH vinnu við að koma skíðalyftunni okkar í lag. Þetta voru þeir Jonni, Öddi og Steinar Áslaugs af Farsæl og af Helga SH mættu þeir Bent, Hemmi Gísla og Hjálmar. Hér má sjá myndir af aðgerðinni.

Frá Tónlistaskóla Grundarfjarðar

Áður auglýstir jólatónleikar skólans sem halda átti í samkomuhúsinu verða í sal fjölbrautaskólans þriðjudaginn 16.desember kl.20.00.  

Litlu jólin í leikskólanum

  Litlu jólin voru haldin í leikskólanum í dag. Allir voru í hátíðarskapi og skemmtu sér við að syngja og dansa í kringum jólatréð. Stúfur, Skyrgámur og Stekkjastaur litu í heimsókn og færðu börnunum pakka. Hér finnast fleiri myndir.  

Nýburahátíð í Grundarfirði

  Nýbakaðir Grundfirðingar komu saman í safnaðarheimilinu síðastliðinn fimmtudag. Börn fædd á árinu 2008 eru ellefu talsins og búist er við því tólfta nú rétt fyrir hátíðirnar.  

Aðgerðir bæjarstjórnar Grundarfjarðarbæjar í tengslum við fjárhagsáætlun fyrir árið 2009.

Á fundi bæjarstjórnar Grundarfjarðarbæjar þ. 11. desember sl. var samþykkt aðgerðaáætlun sem fylgir með fjárhagsáætlun fyrir árið 2009.  Tillaga að fjárhagsáætlun 2009 var til fyrri umræðu á sama fundi.  Aðgerðaáætlunin tekur til fjölmargra liða í rekstri sveitarfélagsins.  Ljóst er að rekstur næsta árs og e.t.v. næstu ára verður erfiðari en verið hefur undanfarin ár vegna þeirra þrenginga í efnahagslífi landsins sem framundan eru.  Aðgerðaáætlunina má skoða í heild sinni  hér. 

Samkeppni í smíði piparkökuhúsa

Nú stendur yfir í Samkaupum samkeppni í smíði piparkökuhúsa. Keppnin stendur til 18. desember og verða húsin til sýnis í versluninni. 

Litlu jólin í leikskólanum

Litlu jólin verða í leikskólanum Sólvöllum á fimmtudaginn 11. desember klukkan 14:00. 

Næsti bæjarstjórnarfundur

99. fundur bæjarstjórnar verður haldinn í samkomuhúsinu, fimmtudaginn 11. desember 2008, kl. 16.15.  Dagskrá fundarins má skoða hér.