Dagur Leikskólans

Í tilefni af Degi leikskólans í dag 6.febrúar þá langar okkur hér í leikskólanum Sólvöllum að vekja athygli á verkefni sem við höfum verið að vinna að síðastliðin tvö ár.  Verkefni þetta heitir Lífsleikni og er þróunarverkefni sem unnið var á þremur leikskólum á Akureyri í samvinnu við Háskólann á Akureyri. Verkefnið byggir á 12 dygðum en þær eru: ábyrgð, áreiðanleiki, glaðværð, hjálpsemi, hófsemi, hugrekki, kurteisi, samkennd, sköpunargleði, vinsemd, virðing og þolinmæði.  Megintilgangurinn með þessari vinnu  er að gera börn og starfsfólk tamt að nota hugtökin í máli, leik og starfi.  Í handbók kennara sem fylgir verkefnapakkanum segir m.a.: „Félags-og tilfinningagreind barna er í mótun öll bernskuárin. Því er mikilvægt að byrja snemma að hlúa að og efla þá þætti með einstaklingnum.  Rannsóknir benda til að grunnurinn sé lagður að félags-og tilfinningaþroska á fyrstu árum þess.  Það er hverjum einstaklingi mikilvægt að vera læs á tilfinningar, þ.e. fær um að hafa taumhald á sér og geta sýnt umhyggju og samúð með öðrum“ (Handbók fyrir kennara. 2007. Ritstjóri: Sonja Kro. Akureyri).  

Skólarnir okkar og atvinnulífið

Forsvarsmenn í atvinnulífinu í Grundarfirði eru boðaðir til fundar í Samkomuhúsinu Grundarfirði þriðjudaginn 11. febrúar nk. kl. 16.30.  Málefnið er Skólastefna í vinnslu – Aðkoma atvinnulífs. Fundinum stýrir Gunnar Kristjánsson verkefnisstjóri.   Grundarfjarðarbær.    

Hundahreinsun

Við minnum á að dýralæknirinn verður í áhaldahúsinu á morgun, miðvikudaginn 5. febrúar kl. 12:30-16:00.  Öllum hundeigendum er skylt að mæta með hunda sína.