Od burmistrza, 18 marca 2020

Drodzy mieszkańcy! Praca w szkole idzie dobrze, jak informuje dyrektor. Anna dyrektorka przedszkola mówi, że wszyscy przystosowują się do nowego rytmu i ogólnie w dzisiejszym dniu wszystko szło dobrze.Odczuwa akceptację i solidarność w tym wszystkim. Personel przedszkola i rodzice dokładają wszelkich starań, aby wszystko dobrze funkcjonowało. Dziękuję Wam za to!

Frá bæjarstjóra, 18. mars 2020

Kæru íbúar! Skólastarfið gengur vel, eftir því sem skólastjórarnir segja. Anna leikskólastjóri segir að þau séu að finna taktinn og heilt yfir hafi gengið vel í dag. Hún finnur fyrir samstöðu í þessu öllu og samhug. Starfsfólk leikskóla geri sitt besta til að láta þetta ganga upp og sömuleiðis foreldrar. Takk fyrir það!

Um sóttkví

Allir sem eiga að fara í sóttkví þurfa að hafa tilkynna sig hjá heilsugæslustöðinni sinni (HVE, Grundarfirði, sími 432-1350) eða gegnum netspjall á heilsuvera.is. Þetta er ekki val - heldur skylda.

Frá bæjarstjóra, 17. mars 2020

Kæru íbúar! Í dag var fyrsti skóladagur hjá börnum í leik- og grunnskóla, eftir nýju fyrirkomulagi í samræmi við lögin tvenn, sem sett voru fyrir fjórum dögum, um takmörkun á skólastarfi og takmörkun á samkomuhaldi. Skólastjórarnir sögðu mér seinnipartinn í dag, að dagurinn hefði gengið vel.

Od burmistrza, 16 marca 2020

Drodzy mieszkańcy! Jutro uczniowie przedszkoli i szkół pójdą znowu do swoich szkół. Zarządzający i pracownicy wykorzystali dzień na organizacji dalszej pracy w szkołach a rodzice wieczorem otrzymali informacje na temat wprowadzonych zmian.

Frá bæjarstjóra, 16. mars 2020

Kæru íbúar! Á morgun fara nemendur grunn- og leikskóla aftur í skólana sína, að loknum starfsdegi í dag. Stjórnendur og starfsfólk nýttu daginn til skipulagningar skólastarfsins og nú seinnipartinn fengu foreldrar kynningu á því.

Od burmistrza, 15 marzec 2020

Drodzy mieszkańcy! Zarządzający i pracownicy Grundarfjörður pracowali w ten weekend nad przygotowaniem dalszej działalności, biorąc pod uwagę ograniczenia, które obowiązują od północy, zgodnie z Profilaktyką Chorób Zakaźnych.

Frá bæjarstjóra, 15. mars 2020

Kæru íbúar! Stjórnendur og starfsfólk Grundarfjarðarbæjar hafa unnið að því um helgina að undirbúa starfsemi með þeim takmörkunum sem taka gildi nú á miðnætti, samkvæmt sóttvarnalögum.

Od burmistrza, 14 marca 2020

Drodzy mieszkańcy! Jak już stwierdzono, zgodnie z Ustawą o Profilaktyce Chorób Zakaźnych, w przypadku niebezpiecznych chorób zakaźnych zezwala się na podejmowanie różnych działań, jeżeli istnieje ryzyko rozprzestrzenienia się epidemii do lub z kraju, albo rozprzestrzenienia się tutaj. Minister Zdrowia skorzystał z tych źródeł wczoraj, 13 marca, i wydał dwie instrukcje.

Frá bæjarstjóra, 14. mars 2020

Kæru íbúar! Eins og komið hefur fram er heimild í sóttvarnalögum til að gera ýmsar ráðstafanir vegna hættulegra smitsjúkdóma, þegar hætta er á að farsóttir berist til eða frá landinu eða breiðist hér út. Heilbrigðisráðherra nýtti þessar heimildir í gær, 13. mars og gaf út tvenn fyrirmæli. Annars vegar er auglýsing um takmörkun á skólastarfi sem taka til alls skólastarfs í landinu.