- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Fyrsti ársfundur LIFE Icewater verkefnisins hefst í Grundarfirði miðvikudaginn 15. apríl 2026. Um er að ræða umfangsmikið samstarfsverkefni 23 aðila sem helgað er aukinni þekkingaröflun á vatni og bættum gæðum vatns. Á ársfundinum verður sjónum m.a. beint að blágrænum ofanvatnslausnum sem Grundarfjarðarbær vinnur nú að sem lið í fráveitumálum sveitarfélagsins.
Einn hæsti styrkurinn til þessa
Icewater samstarfsverkefnið miðar að því að auka þekkingu á notkun, eiginleikum og ástandi vatns, bæta vatnsgæði með úrbótum á fráveitu og hreinsun fráveituvatns og að fræða almenning um mikilvægi vatns svo dæmi séu tekin um helstu markmið þessa viðamikla samstarfsverkefnis. Starfstími verkefnisins spannar árin 2025-2030 og hefur því verið skipt upp í sjö hluta.
Í lok árs 2024 veitti LIFE, umhverfis- og loftslagssjóður ESB, sem kunnugt er verkefninu einn hæsta styrk sem sögur fara af hér á landi eða um 3,5 milljarða króna. Grundarfjarðarbær fékk myndarlegan styrk út á sín verkefni til sex ára eða um 340 millj. kr. Samanlagt umfang verkefna nemur um 5,8 milljörðum króna, en stuðningshlutfall LIFE er 60% af heildarkostnaði hvers verkefnis.
60 fulltrúar sækja ársfundinn
Verkefninu var hleypt af stokkunum í lok mars 2025 og er ársfundurinn nú sá fyrsti á verktímanum. Fundurinn fer fram í samkomuhúsinu við Sólvelli, en með hliðsjón af framlagi Grundarfjarðarbæjar í verkefninu þótti vel við hæfi að fyrsti ársfundur LIFE Icewater yrði haldinn í Grundarfirði. Ársfundinn sækja alls 60 fulltrúar þeirra 23 stofnana og sveitarfélaga sem mynda samstarfsvettvanginn.
Björg Ágústsdóttir, bæjarstjóri Grundarfjarðarbæjar:
„Okkur er bæði heiður og ánægja að fá að taka á móti okkar góðu félögum og halda fyrsta ársfund LIFE Icewater hér í Grundarfirði. Framundan er áhugavert samtal um óþrjótandi brunn nýrra sóknarfæra sem vatn er á hér á landi. Aðkoma Grundarfjarðarbæjar byggir sem dæmi á þróun blágrænna fráveitulausna í grónum íbúðarhverfum, en við horfum á það sem vænni lausn bæði umhverfislega og kostnaðarlega fyrir sveitarfélög, ekki hvað síst þeirra smærri.“
Eins og áður segir sækja 60 manns ársfundinn og munu þau öll dvelja í Grundarfirði í tvo daga. Þjónustuaðilar í Grundarfirði sjá um að hýsa gestina á meðan á viðburði stendur ásamt því að bjóða upp á morgunmat, hádegismat og kvöldmat.