Fimmtudaginn 11. mars n.k. halda nemendur unglingadeildar grunnskólans árshátíð. Að þessu sinni verður hún með því sniði að sett er upp sýning þar sem á boðstólnum verður dans, söngur, tónlist, myndbönd og margt fleira. Sýningin verður í samkomuhúsinu og hefst klukkan 17:30.

Frekari upplýsingar er að finna á vefsíðu grunnskólans.