- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Ársreikningur Grundarfjarðarbæjar 2025 var samþykktur samhljóða á bæjarstjórnarfundi þann 7. maí sl. eftir síðari umræðu. Rekstur bæjarins kom mun betur út en síðustu ár og betur en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir.
Ársreikningurinn er uppsettur samkvæmt reikningsskilum sveitarfélaga. Starfseminni er skipt upp í tvo hluta, A-hluta annars vegar (bæjarsjóður) og B-hluta hins vegar (samstæða). Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum, en í B-hluta eru fyrirtæki sem eru í eigu sveitarfélagsins og eru rekin sem fjárhagslega sjálfstæðar einingar. Þær stofnanir sem falla undir B-hluta eru Hafnarsjóður, Fráveita, Íbúðir eldri borgara, Leiguíbúðir, Sorphirða og sorpeyðing og Sögumiðstöðin.
Helstu kennitölur ársreiknings
Rekstrarniðurstaða samkvæmt samanteknum ársreikningi A og B hluta var jákvæð um 179,5 millj. kr. Fjárhagsáætlun samstæðu með viðauka gerði ráð fyrir 112 millj. kr. jákvæðri niðurstöðu. Sé litið til A hluta eingöngu, þá er rekstrarafkoma A-hluta jákvæð á árinu um 58,8 millj. kr., en áætlun gerði ráð fyrir 19,3 millj. kr.
Í samanburði við 179,5 millj. kr. rekstrarafgang ársins 2025 þá var afgangur samstæðunnar 83,6 millj. kr. árið 2024, 51 millj. kr. árið 2023, 50 millj. kr. árið 2022, tæpar 36 millj. kr. árið 2021, 7 millj. kr. fyrsta Covid-árið 2020, en 83,3 millj. kr. 2019.
Rekstrartekjur A-hluta námu 1.632,3 millj. kr., en áætlun hafði gert ráð fyrir tæplega 1.617 millj. kr. Rekstrartekjur samstæðu voru 2.011 millj. kr., en áætlun gerði ráð fyrir 1.959 millj. kr. Þær hækkuðu um 201 millj. kr. frá 2024, eða um 11,1%. Útsvarstekjur hækkuðu um 7,5% frá fyrra ári.
Rekstrargjöld samstæðunnar voru 1.634 millj. kr. og hækkuðu um 7,2% frá 2024. Laun og launatengd gjöld námu 1.008 millj. kr. í samstæðu, breyting lífeyrisskuldbindinga 17,7 millj. kr. og annar rekstrarkostnaður var 608,2 millj. kr.
Á árinu var fjárfest fyrir rúmar 366 millj. kr. (A- og B-hluti).
Heildareignir bæjarsjóðs námu 2.447 millj. kr. og heildareignir samstæðu 2.950 millj. kr. í árslok 2025.
Eigið fé sveitarfélagsins í árslok 2025 nam tæpum 1.660 millj. kr. skv. efnahagsreikningi, þar af nam eigið fé A-hluta 1.178,5 millj. kr. Eiginfjárhlutfall var 37,56%, en var 35,01% árið áður.
Heildarskuldir og skuldbindingar sveitarfélagsins námu 2.163,8 millj. kr., en námu 2.056,6 millj. kr. árið 2024.
Skv. reglum um fjárhagsleg viðmið sveitarfélaga mega heildarskuldir og skuldbindingar A- og B- hluta bæjarsjóðs ekki vera hærri en 150% af reglulegum tekjum ársins. Skuldahlutfall skv. reglum um fjárhagsleg viðmið sveitarfélaga er 86,14% í samanteknum ársreikningi 2025, en var 91,05% árið 2024, 93% árið 2023, 97,8% árið 2022, 111,7% árið 2021, 119,4% árið 2020. Árið 2009 fór skuldahlutfallið í 258%. Hjá A-hluta var hlutfallið 84,31%, en var 88,89% á árinu 2024.
Veltufé frá rekstri í samanteknum ársreikningi var 323,1 millj. kr., en var 252 millj. kr. árið 2024. Framlegðarhlutfall rekstrar hjá samstæðunni var 18,75% en var 15,81% árið 2024.
Handbært fé í árslok var 93,0 millj. kr., en var 61,4 millj. kr. árið áður.
Fjárfestingar á árinu 2025
Eins og áður segir, þá fjárfesti Grundarfjarðarbær á árinu 2025 fyrir 366,3 millj. kr., þar af voru fjárfestingar B-hluta 131,3 millj. kr.
Fja´rfestingar í B-hluta voru, á vegum Hafnarsjóðs rúmar 131 millj. kr., Sögumiðstöð 26,9 millj. kr. og hjá íbúðum eldri borgara var fjárfesting 31 millj. kr. í tekjur, sem skýrist af sölu íbúðar.
Íbúafjöldi
Auk þess má geta þess að íbúafjöldi var 892 í árslok 2025, en 869 árið 2024, 862 árið 2022 og 839 árið 2021.