Atkvæðagreiðsla vegna kjörs forseta Íslands á að fara fram laugardaginn 25.  júní 2016. Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar er hafin. Í umdæmi Sýslumannsins á Vesturlandi fer hún fram á eftirtöldum stöðum:

 

Akranesi - skrifstofu sýslumanns, Stillholti 16-18,  virka daga kl. 10.00 til 15.00

Borgarnesi - skrifstofu sýslumanns, Bjarnarbraut 2,  virka daga kl. 10.00 til 15.00

Búðardal - skrifstofu sýslumanns, Miðbraut 11,  virka daga kl. 12:30 til 15.30

Eyja- og Miklaholtshreppi - skrifstofu hreppsstjóra, Þverá, virka daga kl. 12.00 til 13.00

Ólafsvík - skrifstofu sýslumanns, Bankastræti 1a á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 10.00 til 14.00

Stykkishólmi - skrifstofu sýslumanns, Borgarbraut 2,  virka daga kl. 10.00 til 15.00

Grundarfirði – skrifstofu sýslumanns, Hrannarstíg 2, kosning hefst þar 7. júní  og verður kosið á mánudögum,

þriðjudögum og fimmtudögum, kl. 17.00 til 19.00

 

Hægt er að kjósa á öðrum tíma samkvæmt nánara samkomulagi við viðkomandi kjörstjóra.

 

Kjósendum er bent á að hafa persónuskilríki meðferðis á kjörstað.