Mynd Tómas Freyr
Mynd Tómas Freyr

 

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar

Kjör forseta Íslands fer fram laugardaginn 27.  júní  2020.

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hófst í dag, þriðjudaginn 9. júní, hér í Grundarfirði og stendur til kjördags.

Kosið er utankjörfundar á opnunartíma bæjarskrifstofu í Ráðhúsi Grundarfjarðar, Borgarbraut 16 efri hæð. Opið er virka daga frá 10:00-14:00.

Kjósendum er bent á að hafa persónuskilríki meðferðis á kjörstað.

 --- 

Í auglýsingu Sýslumannsins á Vesturlandi segir að atkvæðagreiðsla utan kjörfundar fari fram á eftirtöldum stöðum frá 25. maí 2020:

Akranesi - skrifstofu sýslumanns, Stillholti 16-18,  virka daga kl. 10.00 til 15.00

Borgarnesi - skrifstofu sýslumanns, Bjarnarbraut 2,  virka daga kl. 10.00 til 15.00

Stykkishólmi - skrifstofu sýslumanns, Borgarbraut 2,  virka daga kl. 10.00 til 15.00

Frá 9. júní 2020 verður einnig kosið á neðangreindum stöðum;

Búðardal - skrifstofu sýslumanns, Miðbraut 11,  á þriðjudögum og fimmtudögum, kl. 09.30 til 13.00

Eyja- og Miklaholtshreppi - skrifstofu hreppsstjóra, Þverá, virka daga kl. 12.00 til 13.00

Grundarfirði – skrifstofu Grundarfjarðarbæjar,  Borgarbraut 16, virka daga kl. 10.00 til 14.00

Snæfellsbær  - skrifstofu sýslumanns, Klettsbúð 4, virka daga kl. 09.00 til 12.00 og 13.00  til 15.00

 

Hægt er að kjósa á öðrum tíma samkvæmt nánara samkomulagi við viðkomandi kjörstjóra.

 

                                                            Stykkishólmi,  25. maí 2020

                                                                        Sýslumaðurinn á Vesturlandi