Mynd Tómas Freyr Kristjánsson
Mynd Tómas Freyr Kristjánsson

Kosið verður til Alþingis laugardaginn 25. september 2021.

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hefst mánudaginn 6. september, hér í Grundarfirði og stendur til kjördags.

Kosið er utankjörfundar á opnunartíma bæjarskrifstofu í Ráðhúsi Grundarfjarðar, Borgarbraut 16 efri hæð. Opið er virka daga frá 10:00-14:00.

Kjósendum er bent á að hafa persónuskilríki meðferðis á kjörstað.

 --- 

Í auglýsingu Sýslumannsins á Vesturlandi segir að atkvæðagreiðsla utan kjörfundar sé hafin á eftirfarandi stöðum:

Akranesi - skrifstofu sýslumanns, Stillholti 16-18

Mánudaga til fimmtudaga kl. 10:00 til 15:00 en kl. 09:00 til 14:00 á föstudögum.

Borgarnesi - skrifstofu sýslumanns, Bjarnarbraut 2

Mánudaga til fimmtudaga kl. 10:00 til 15:00 en kl. 09:00 til 14:00 á föstudögum.

Búðardal - skrifstofu sýslumanns, Miðbraut 11  

Þriðjudaga og fimmtudaga kl. 09:30 til 13:00.

Eyja- og Miklaholtshreppi - skrifstofu hreppsstjóra, Þverá

Alla virka daga kl. 12:00 til 13:00.

Stykkishólmi - skrifstofu sýslumanns, Borgarbraut 2 

Mánudaga til fimmtudaga kl. 10.00 til 15.00 en kl. 09:00 til 14:00 á föstudögum.

 

Frá 6. september er einnig hægt að kjósa á neðangreindum stöðum:

Grundarfirði – Ráðhúsi Grundarfjarðar, Borgarbraut 16

Alla virka daga kl. 10:00 til 14:00.

Hægt er að kjósa á öðrum tíma samkvæmt nánara samkomulagi við viðkomandi kjörstjóra.

Snæfellsbæ - skrifstofu Snæfellsbæjar, Klettsbúð 4

Alla virka daga kl. 09:00 til 12:00 og 13:00 til 15:30.

Hægt er að kjósa á öðrum tíma samkvæmt nánara samkomulagi við viðkomandi kjörstjóra.