Kosið verður til sveitarstjórna laugardaginn 14. maí 2022. Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar er hafin í Grundarfirði. 

Kosið er utankjörfundar á opnunartíma bæjarskrifstofu í Ráðhúsi Grundarfjarðar, Borgarbraut 16, efri hæð (gengið inn að sunnanverðu). Opið er virka daga frá 10:00-14:00. 

Jafnframt verður unnt að kjósa utankjörfundar á kjördag til kl. 17:00.

Hægt er að kjósa á öðrum tíma samkvæmt nánara samkomulagi við kjörstjóra, Helgu Sjöfn Ólafsdóttur (8697250)

Kjósendum er bent á að hafa persónuskilríki meðferðis á kjörstað.