Auglýsing um breytingu á aðalskipulagi Grundarfjarðar 2003-2015.

Aðveitustöð – Aðalskipulagsbreyting

 

Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar hefur samþykkt á fundi  20. mars 2015 að auglýsa  breytingu á aðalskipulagi Grundarfjarðar 2003-2015 samkvæmt 1. mgr.  31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Meginmarkmið aðalskipulagsbreytingarinnar er að bæta afhendingaröryggi raforku á svæðinu með færslu tengivirkis í aðveitustöð og lagningu jarðstrengja, auk þess að færa aðveitustöðina fjær íbúðarbyggð. Markmiðið er einnig að breytingin valdi sem minnstri röskun á umhverfinu til lengri og skemmri tíma.

Aðalskipulagsbreytingin verður aðgengileg á vef Grundarfjarðar, www.grundarfjordur.is og á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa, Borgarbraut 16 á skrifstofutíma frá 10-14 frá 29. apríl 2015 til 11. júní 2015 og eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eru hvattir til að kynna sér aðalskipulagsbreytinguna og koma ábendingum eða athugasemdum á framfæri, skriflega til skipulags- og byggingarfulltrúa Grundarfjarðar, Borgarbraut 16, 350 Grundarfjörður eða á netfangið bygg@grundarfjordur.is  í síðasta lagi 11. júní 2015.

Skipulags- og byggingarfulltrúinn í Grundarfirði.

Auglýsing um breytingu á deiliskipulagi vestan Kvernár – Iðnaðar og athafnarsvæði.

 

Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar hefur samþykkt á fundi  20.mars 2015 að auglýsa nýja deiliskipulagstillögu  samkvæmt  41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Deiliskipulagstillaga er auglýst samhliða breytingu á aðalskipulagi 2003-2015.

Skipulagssvæðið er áætlað fyrir eina iðnaðarlóð og aðkomu að henni. Á lóðinni sem er 4.900m² að stærð, er heimilt að reisa allt að 620m² byggingu. Hámarkshæð húss er 8.25m frá gólfi jarðhæðar. Skipulagssvæðið sem er rúmir 7.6ha er suðaustan þéttbýlisins og liggur á milli ánna Gilóss og Kvernár. Sjá nánar í deiliskipulagstillögu og greinagerð.

Deiliskipulagstillagan og greinagerðin verður aðgengileg á vef Grundarfjarðar, www.grundarfjordur.is og á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa, Borgarbraut 16 á skrifstofutíma frá 10-14 frá 29. apríl 2015 til 11. júní 2015 og eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eru hvattir til að kynna sér deiliskipulagstillöguna og koma ábendingum eða athugasemdum á framfæri, skriflega til skipulags- og byggingarfulltrúa Grundarfjarðar, Borgarbraut 16, 350 Grundarfjörður, í síðasta lagi 11. Júní 2015.