Grundarfjarðarbæ gefst kostur á að sækja um byggðakvóta til sjávarútvegsráðuneytisins skv. auglýsingu um úthlutun byggðakvóta 2007.

Sveitarstjórnir eru umsóknaraðilar fyrir byggðarlögin innan sveitarstjórnarumdæmanna og annast öll samskipti við ráðuneytið vegna úthlutunarinnar.  Fiskistofa mun úthluta byggðakvóta eftir mat á umsóknum frá sveitarfélögunum.

Til greina við úthlutun byggðakvóta koma byggðarlög með færri en 1500 íbúa sem lent hafa í vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi og sem háð eru veiðum og vinnslu á botnfiski.  Ennfremur byggðarlög sem orðið hafa fyrir óvæntri skerðingu á heildaraflaheimildum fiskiskipa sem gerð hafa verið út og landað afla í viðkomandi byggðarlögum og sem veruleg áhrif hefur haft á atvinnuástand í þeim.  

Send verður umsókn til ráðuneytisins með hliðsjón af rökstuddum erindum sjávarútvegsfyrirtækja/útgerða skipa í Grundarfirði, sem boðið er að senda erindi til bæjarstjórnar þar að lútandi. Leitað er eftir upplýsingum/óskum/rökstuðningi frá þeim aðilum sem telja að sækja eigi um byggðakvóta um það á hvaða forsendum bæjarstjóri eigi að sækja um.

Tilkynning um þetta er send öllum eigendum/útgerðum skipa sem skráð eru í Grundarfirði og þessi auglýsing er birt í Vikublaðinu Þey og á heimasíðu bæjarins.

Þar sem umsóknarfrestur til sjávarútvegsráðuneytisins er aðeins til 4. apríl n.k. þurfa erindi að hafa borist í síðasta lagi 2. apríl n.k. á bæjarskrifstofuna, Grundargötu 30, 350 Grundarfirði, eða á netfang bæjarstjóra:  baejarstjori@grundarfjordur.is  Bæjarstjóri veitir nánari upplýsingar í sama netfangi eða í síma 430 8500.

 

Guðmundur Ingi Gunnlaugsson, bæjarstjóri