Bæjarráð Grundarfjarðarbæjar samþykkti á fundi sínum þ. 2. desember 2008 að á árinu 2009 verði greiddar húsaleigubætur í Grundarfjarðarbæ skv. ákvæðum reglugerðar nr. 118/2003 með síðari breytingum, um grunnfjárhæðir húsaleigubóta.

 

Þeim sem hafa sótt um og fengið húsaleigubætur á árinu 2008, er bent á eftirfarandi: Endurnýja þarf umsóknir í byrjun nýs árs, þ.e. í janúar 2009, ef viðkomandi óska eftir framhaldi á greiðslum húsaleigubóta.

 

Bæjarráð Grundarfjarðarbæjar.