Auglýsing um kjörfund vegna forsetakosninga 2020

Kjörfundur vegna forsetakosninga  í Grundarfirði verður í Samkomuhúsi Grundarfjarðar 
laugardaginn 27. júní.

Kjörfundur stendur yfir frá kl. 10-22.

Kjósendur þurfa að framvísa persónuskilríkjum.

Hér geta kjósendur kannað hvort og hvar þeir eru á kjörskrá.

Einnig er hægt að kjósa utan kjörfundar í Ráðhúsi Grundarfjarðar, Borgarbraut 16 efri hæð. Opið á virkum dögum frá kl. 10-14.

Kjörstjórn Grundarfjarðarbæjar