Bæjarstjórn Grundarfjarðar hefur samþykkt tekjumörk til viðmiðunar við niðurfellingu fasteignaskatts af íbúðum elli- og örorkulífeyrisþega.

 

Miðað er við tekjur ársins 2003, þ.e.a.s. álagningu 2004, nema miklar breytingar hafi orðið á tekjum fólks á árinu 2004.

 

Allar upplýsingar um niðurfellingu fasteignaskatts liggja frami á bæjarskrifstofu Grundarfjarðar eða eru veittar í síma 430 8500. Sækja þarf um niðurfellingu á sérstökum eyðublöðum sem einnig fást á bæjarskrifstofunni. Skila þarf endurriti af skattframtali 2004 með umsókn.

 

Þeir sem hyggjast sækja um niðurfellingu fasteignaskatts eru hvattir til að gera það sem fyrst en í síðasta lagi 11. febrúar nk.

 

Skrifstofustjóri