Starfsleyfistillaga fyrir olíubirgðastöð Olíudreifingar ehf. í Grundarfirði

Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir olíubirgðastöð Olíudreifingar ehf. við Nesveg 4b og 10 í Grundarfirði. Um er að ræða stöð sem er með tvær lekavarnaþrær.

Umhverfisstofnun hefur ekki hug á að hafa opinn kynningarfund um tillöguna en berist ósk um fund verður það endurskoðað.

Athugasemdir við starfsleyfistillöguna skulu vera skriflegar og sendast á Umhverfisstofnun. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 19. janúar 2018.