Auglýsing um tillögu að deiliskipulagi við Kirkjufellsfoss, Grundarfjarðarbæ

Bæjarstjórn Grundarfjarðar samþykkti þann 4. apríl 2018 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi við Kirkjufellsfoss ásamt umhverfismati hennar, skv. 41. gr. skipulagslaga.

Tillaga að deiliskipulagi við Kirkjufellsfoss tekur til um 10,5 ha svæðis umhverfis fossinn. Innanmarka deiliskipulagssvæðisins verða bílastæði, gönguleiðir, upplýsingaskilti, áningarstaðir og salernisaðstaða. Ekkert deiliskipulag er í gildi fyrir svæðið. Það þjónar bæði ferðalöngum og náttúrunni að skipuleggja svæðið og umgengni um það af kostgæfni.

 

Tillagan verður til sýnis á bæjarskrifstofunum Borgarbraut 16 og birt á vef bæjarins, www.grundarfjordur.is, frá 5. apríl til og með 17. maí 2018.

Þeim sem eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna til og með fimmtudagsins 17. maí 2018. Athugasemdir eða ábendingar skulu vera skriflegar og berast skipulagsfulltrúa í síðasta lagi 17. maí 2018 annað hvort á netfangið grundarfjordur@grundarfjordur.is eða með pósti merkt: Grundarfjarðarbær, Deiliskipulag, Borgarbraut 16, 350 Grundarfjörður. Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillöguna teljast henni samþykkir.

 

Bæjarstjóri Grundarfjarðarbæjar

 

 

Tillaga að deiliskipulagi - greinargerð ásamt skipulagsskilmálum

Kirkjufellsfoss - uppdráttur