Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa fyrir byggðarlagið:

Tálknafjarðarhreppur

Jafnframt er endurauglýst fyrir byggðarlagið:

Grundarfjarðarbær ( Grundarfjörður)

Áður innsendar umsóknir fyrir Grundarfjörð gilda áfram.

Um úthlutunarreglur í ofangreindum byggðalögum vísast til reglugerðar nr. 605, 24. júní 2008 auk sérstakra úthlutunarreglna í hlutaðeigandi byggðalögum sbr. auglýsingu nr. 777/2008 í Stjórnartíðindum.

Þessar reglur er einnig að finna á heimasíðu Fiskistofu, www.fiskistofa.is  Umsóknum skal skilað til Fiskistofu á eyðublaði sem er að finna á heimasíðu stofnunarinnar. Umsóknarfrestur er til og með 21. ágúst 2008.

 

Fiskistofa, 6. ágúst 2008.