- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa fyrir eftirfarandi byggðarlög:
Grundarfjarðarbær
Borgarfjarðarhreppur (Borgarfjörður eystri)
Seyðisfjörður
Sveitarfélagið Norðurþing (Húsavík, Kópasker, Raufarhöfn)
Akureyrarbær (Hrísey, Grímsey)
Auk reglugerðarinnar er vísað til sérstakra úthlutunarreglna í hlutaðeigandi byggðalögum sbr. auglýsingu nr. 671/2009 í Stjórnartíðindum.
Umsóknum skal skilað til Fiskistofu á eyðublaði sem er að finna á heimasíðu stofnunarinnar, og þar eru ofangreindar reglur einnig aðgengilegar. Umsóknarfrestur er til og með 17. ágúst 2009.
Fiskistofa, 31. júlí 2009