Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2017/2018 sbr. reglugerð um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa nr. 604, 3. júlí 2017

 

Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa fyrir:

Grundarfjörð

Auk reglugerðarinnar er vísað til sérstakra úthlutunarreglna í neðanskráðum byggðalögum sbr. auglýsingu nr. 5/2018 í Stjórnartíðindum

 

Snæfellsbær (Arnarstapi, Hellissandur, Rif og Ólafsvík)

Sveitarfélagið Garður

Sveitarfélagið Skagaströnd

Húnaþing vestra (Hvammstangi)

 

Umsóknum skal skilað til Fiskistofu ásamt samningi við vinnsluaðila, á eyðublöðum sem er að finna á heimasíðu stofnunarinnar (fiskistofa.is), og þar eru ofangreindar reglur einnig aðgengilegar.  Umsóknarfrestur er til og með 22. janúar 2018.

 

Fiskistofa, 5. janúar 2018 .