Auglýsing vinnslutillögu aðalskipulags vegna Háubakka

Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar samþykkti á fundi sínum þann 12. febrúar sl. að auglýsa vinnslutillögu aðalskipulagsbreytingar fyrir Háubakka í samræmi við 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulags- og umhverfisnefnd hafði áður fjallað um og samþykkt tillöguna á fundi sínum þann 9. febrúar sl. Skipulagslýsing hafði áður verið auglýst og umsagnartími um hana á Skipulagsgátt var frá 11. nóvember til 1. desember 2025.

Tillagan felur í sér að reitur ÍB-4 í Aðalskipulagi Grundarfjarðar stækkar til vesturs að Hellnafelli. Samhliða er unnið að deiliskipulagsgerð fyrir íbúðarbyggð. Með aðalskipulagsbreytingunni er stækkaður reitur fyrir íbúðarbyggð og er rýmið ætlað undir lóðir fyrir einbýlishús í samræmi við þau hús sem þegar eru vestast á Grundargötu. 

Svæðið er staðsett vestan við ystu hús á Grundargötu og er nokkurs konar hlið inn í bæinn frá vestri. Svæðið er mjög vel sýnilegt frá þjóðveginum með einstöku útsýni í átt að Kirkjufelli til norðvesturs og að Helgrindum til suðurs. Um er að ræða gamalt landbúnaðarland sem hallar niður í átt að sjó og liggur lækur í gegnum svæðið. Verið er að kortleggja vatnsrennsli í læknum til þess að meta hversu nærri honum byggðin má vera. Íbúðarsvæðið verður framlenging á núverandi íbúðarsvæði vestast við Grundargötu með tvöfalda röð af 1-2 hæða einbýlishúsum.

Grundargata er aðalgata bæjarins, sem liggur þvert í gegnum hann og gegnir jafnframt hlutverki stofnvegar í þjóðvegakerfi landsins. Um hana fer bæði allur gegnumakstur og stór hluti innanbæjarumferðar. Mikilvægt er að tekið sé tillit til beggja hlutverka við útfærslu götunnar, þ.e. að um leið og hugað er að greiðfærni og aðgengi að þjónustu þarf að passa upp á góð skilyrði fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur og að gatan sé örugg og aðlaðandi sem almenningsrými. Gangstétt meðfram Grundargötu norðanverðri endar við hús nr. 92, sem í dag er næst vestasta húsið í þéttbýlinu.

Vinnslutillagan er auglýst á tímabilinu 18. febrúar - 3. mars 2026. Ábendingar og athugasemdir við tillöguna skulu berast í síðasta lagi 3. mars í gegnum Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar.

Tillagan er til sýnis í Ráðhúsi Grundarfjarðar, á bókasafninu í Sögumiðstöðinni, Grundargötu 35, og í héraðsfréttablaðinu Skessuhorni.

Opið hús verður haldið miðvikudaginn 25. febrúar 2026 kl. 13:00-14:00 í Ráðhúsi Grundarfjarðar, Borgarbraut 16.

Vinnslutillaga Háubakkar

 

Grundarfirði, 18. febrúar 2026, 

Sigurður Valur Ásbjarnarson, skipulagsfulltrúi Grundarfjarðarbæjar