Veittir verða styrkir úr Uppbyggingarsjóði Vesturlands í eftirfarandi verkefni:

1)      Styrkir til atvinnuþróunar og nýsköpunar.

2)      Verkefnastyrkir á sviði menningar.

3)      Stofn- og rekstrarstyrkir menningarmála.

Styrkir úr Uppbyggingasjóði koma í stað styrkveitinga úr sjóðum menningar- og vaxtarsamninga. Uppbyggingarsjóður Vesturlands er samkeppnissjóður.

Einungis verður ein úthlutun á árinu 2015 fyrir verkefnastyrki á sviði menningar og stofn- og rekstrarstyrkja menningarmála.

Styrkjum til atvinnuþróunar og nýsköpunar verður einnig úthlutað að þessu sinni og aftur síðar á árinu og eru þessir styrkir eru opnir fyrir úthlutun allt árið.

Verklags- og úthlutunarreglur má finna HÉR

Frestur til að skila umsóknum er til 22. apríl 2015.

Áherslur Uppbyggingarsjóðs Vesturlands;

 

  • Verkefnið þarf að stuðla að framgangi sóknaráætlunar Vesturlands.
  • Samstarf; Æskilegt er að tveir eða fleiri þátttakendur standi að baki hverri umsókn og í umsókn sé rökstutt hvernig samstarfið gagnist verkefninu. Þetta á ekki við um minni verkefni.
  • Samstarf við háskóla, rannsókna- eða fræðastofnanir skal teljast umsóknum til tekna.
  • Atvinnuuppbygging; Stuðlar verkefnið að fjölgun atvinnutækifæra.
  • Fjölbreytni og nýsköpun; Stuðlar verkefnið að nýsköpun og aukinni fjölbreytni innan atvinnulífs og í menningarstarfi.
  • Mannauður; hækkun menntunnar- og þekkingarstigs.

Athygli er vakin á því að um umsóknarferlið fyrir menningartengda styrki er með sambærilegum hætti og var í Menningarsamningi þ.e. að umsóknir skulu sendar inn með rafrænum hætti.

Umsóknarform fyrir menningartengda styrki má finna HÉR

Umsóknarferlið um styrki til atvinnu- og nýsköpunarverkefna verður hins vegar með sambærilegum hætti og var í Vaxtarsamningi, þannig að umsóknir verða sendar á netfangið uppbyggingarsjodur@ssv.is,

Umsóknareyðublað fyrir styrk til atvinnu- og nýsköpunarverkefna má finna HÉR

Nánari upplýsingar og aðstoð er hægt að fá á skrifstofu SSV í síma 433-2310. Einnig er hægt að hafa samband við Elísabetu Haraldsdóttur í síma 433-2313 eða 892-5290, netfang menning@vesturland.is og Ólaf Sveinsson í síma 433-2312 eða 892-3208, netfang olisv@ssv.is

Viðtalstímar

Til þess að veita frekari upplýsingar um styrki til menningarstarfs, atvinnuþróunar og nýsköpunar verða starfsmenn SSV með eftirfarandi viðtalstíma:

Fimmtudagur  9. apríl – Grundarfjörður

Kl. 13:00-15:00 - Bæjarskrifstofa