Undanfarin ár hafa grunnskólanemendurnir okkar verið svo heppnir að fyrirtæki og stofnanir hér í bæ, hafa boðið þeim upp á ávexti á morgnana.  

Ingibjörg eða Bibba (flestir þekkja hana sennilega betur undir því nafni) hefur verið ötul við að leita styrkja til ávaxtakaupanna og  séð til þess að þeir hafa staðið nemendum til boða síðustu ár.  Nú síðast var það Landsbankinn, Jón og Ásgeir ehf., TSC ehf og Blossi ehf. sem kostuðu ávaxtakaupin.  Viljum við enn og aftur færa þem okkar bestu þakkir fyrir.

Nú er hins vegar spurningin hvort einhverjir eru til í að styrkja ávaxtakaupin fyrir næsta skólaár, ef svo er þá hafið endilega samband við skólastjóra.