Guðjón Elisson hefur nú lokið við að taka myndir af öllum bæjum í Eyrarsveit og komið þeim inn á Grundarfjarðarvefinn þar sem hægt er að skoða þær með sama hætti og húsin í bænum. Ef smellt er á „bæirnir í sveitinni“ hér til hægri kemur upp loftmynd af Eyrarsveit í heild sinni. Á loftmyndinni er svo hægt að smella á hvern bæ fyrir sig og sjá myndir af þeim húsum sem þar eru.

Guðjón á heiður skilinn fyrir þessa vinnu sína fyrir heimasíðu Grundarfjarðarbæjar og nokkuð ljóst er að svona heimildir er ekki víða að finna á vefjum sveitarfélaga.